Stærsta kjaramálið er að endurskoða húsnæðislánakerfið segir félagsmálaráðherra sem óttast að verðbólga sprengi kjarasamninga í haust. Fjármálaráðherra tekur undir áhyggjurnar.Í núgildandi kjarasamningum á almennum vinnumarkaði er forsenduákvæði - sem þýðir að ef verðbólga hefur verið yfir 4,7% í 12 mánuði fyrir 1. september í ár megi endurskoða samninginn.Nú mælist verðbólga 5,2%, annan mánuðinn í röð, og sífellt fleiri hafa undanfarið viðrað áhyggjur af því að forsendur samninganna bresti.„Ég deili þeim áhyggjum,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. Undir það tekur Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra. „Það er ekki annað hægt,“ segir Daði.Ráðherrar fjármála og félagsmála óttast að kjarasamningar bresti í haust vegna verðbólgu. Fjármálaráðherra seg