Arnar Eggert Thoroddsen skrifar:Síðasta plata Izleifs, Ég á móti mér, kom út haustið 2024, sjö laga verk, nánast stuttskífa. Fyrr sama ár hafði Þetta er Izleifur komið út, snöggtum lengri. Ég á móti mér sýndi fram á talsverða hæfileika í hipphopplistinni, öryggi og sjálfstraust yfir þó að eitt og annað mætti svo sem hefla betur til. 100&EINN, fullburða breiðskífa sem telur 17 lög á tveimur plötum, sígur hæglega fram úr fyrri verkum, þetta er straumlínulagaðra, þéttara, enn öruggara og einfaldlega betra.Izleifur, Ísleifur Eldur Illugason, byrjaði sem upptökustjórnandi en færði sig svo á bak við hljóðnemann. Eins og nafn plötunnar gefur til kynna er 101 hverfið í Reykjavík miðlægt en þar ólst piltur upp. Stór plata er þetta en gestir eru engir aukvisar, Birnir, Flóni, Herra Hnetusmjör, Joey