Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Gera upp stóla safnaðarheimilisins - „Þetta er eins og að horfa yfir fallegan kindahóp“

Sjálfboðaliðar hafa varið mörg hundruð klukkustundum síðustu mánuði í að pússa, lakka og bólstra gamla stóla úr safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Verkið sparar sókninni milljónir en forsprakkinn segir launin vera ánægju og góðan félagsskap. Verkefnið hófst í nóvember en nú fer að sjá fyrir endann á því.Hópur Akureyringa hefur undanfarið eytt frístundum sínum í að gera upp gamla stóla úr safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Sjálfboðaliðar segja verkið hverrar mínútu virði.Stólarnir í safnaðarheimilinu voru teknir í notkun árið 1990 og kominn tími til þess að lappa upp á þá. Nú þegar hefur hópurinn lokið við 160 stóla af þeim 260 sem til stendur að gera upp.Hver stóll tekur nokkrar klukkustundir og eru því vinnustundirnar orðnar ófáar hjá Bryngeiri og félögum. Sóknarnefnd Akureyrarkirkju fékk til
Gera upp stóla safnaðarheimilisins - „Þetta er eins og að horfa yfir fallegan kindahóp“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta