Ráðist var á Gitte Dreier Jacobsen, frambjóðanda flokksins Alternativet, að loknum kosningafundi í Húsi kynslóðanna í Árósum á Jótlandi í gærkvöld. Fundurinn var haldinn í tengslum við þingkosningar sem fara fram í Danmörku á þriðjudag.Danska ríkisútvarpið hefur eftir upplýsingafulltrúa flokksins að hópur fólks hafi elt Jacobsen þegar hún yfirgaf fundarstaðinn. Gerð voru hróp að henni og hún sökuð um dýraníð.Torsten Gejl eiginmaður Jacobsen, sem jafnframt er þingmaður Alternativet, segir í samtali við DR að á fundinum hafi hópur sem hafi kallað sig dýraverndunarsinna áreitt hana. Þegar hún kom út hafi sami hópur öskrað á hana með blótsyrðum og myndskeið tekið af henni þar sem myndavélin var nánast upp við höfuðið á henni. Þetta hafi gengið í 20 mínútur þangað til kona í hópnum hafi slegið