Sýningin Verk og vit sem sýnir það nýjasta í íslenskum byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum opnaði í gær í Laugardalshöllinni.Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, setti sýninguna ásamt Eyjólfi Ármanssyni innviðaráðherra.Hátt í 100 sýnendur taka þátt í sýningunni í ár. Sýningin er opin fagaðilum alla sýningardaga en almenningi gefst kostur á að heimsækja hana yfir helgina (21. og 22. mars).Sýningin fagnar 20 ára afmæli sínu þetta árið en fyrsta sýningin var haldin árið 2006.Samhliða sýningunni verður einnig haldin ráðstefna og aðrir viðburðir. Áhugi fagaðila og almennings hefur verið mikill, en síðustu þrjár sýningar hafa fengið um 25.000 gesti hver. Samstarfsaðilar sýningarinnar eru félags- og húsnæðismálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Byk