Ásta Dís Óladóttir, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, hefur verið kjörin forseti Viðskiptafræðideildar háskólans og tekur við embætti 1. apríl.Hún tekur við af Margréti Sigrúnu Sigurðardóttur sem verður kennslustjóri Háskóla Íslands.Ásta Dís hefur stýrt MBA-námi HÍ undanfarin fimm ár.Í tilkynningu segir að Ásta Dís hafi ritað fjölda vísindagreina og bóka á sviði stjórnunar, jafnréttis og sjávarútvegs og leiði rannsóknir á jöfnum tækifærum kynja til efnahagslegrar þátttöku. Árið 2025 stofnaði Ásta Dís ásamt fleirum Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi við Háskóla Íslands.Ásta Dís Óladóttir prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslandso og nýr forseti Viðskiptafræðideildar.Háskóli Íslands / Aðsend