Frumvarp ríkisstjórnarinnar um skammtímaleigu, oft kennt við Airbnb, varð að lögum á Alþingi í gær. Í því felst að heimagisting verður bundin við lögheimili einstaklings og eina eign utan þéttbýlis, eins og sumarbústað. Þá verða rekstrarleyfi gerð tímabundin til fimm ára í senn, í stað þess að vera ótímabundin. Sýslumanni verður heimilt að óska eftir upplýsingum frá ríkisskattstjóra í tengslum við eftirlit vegna skráningarskyldrar heimagistingar. Áfram verður heimilt að leigja þessar eignir í allt að 90 daga á ári.Í færslu á samfélagsmiðlum segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingar, að lagabreytingin eigi að verða til þess að breyta nokkur hundruð íbúðum úr fjárfestingarvöru í heimili.Í greinargerð við frumvarpið kemur fram að því sé ætlað að draga úr umfangi skammtímalei