Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Telja að bíl hafi verið beitt sem vopni í tilraun til manndráps í bílakjallara

Talið er að bíl hafi verið beitt sem vopni í alvarlegri líkamsárás í bílakjallara við Höfðatorg í Reykjavík aðfaranótt þriðjudags. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps og rannsóknin er umfangsmikil. 12 rannsóknarlögreglumenn kembdu bílakjallarann í gærkvöldi og lögðu hald á hluti sem tengjast málinu. Íslendingur sem slasaðist alvarlega í árásinni hefur verið útskrifaður af gjörgæslu.Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu.Áttundi maðurinn var handtekinn vegna árásarinnar í dag. Sjö voru handteknir á þriðjudag en tveimur sleppt úr haldi. Einn situr í gæsluvarðhaldi fram á miðvikudag en fjórum öðrum var sleppt úr gæsluvarðhaldi í dag. Ekki liggur fyrir hvort farið verður
Telja að bíl hafi verið beitt sem vopni í tilraun til manndráps í bílakjallara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta