Vinningstillaga að rammaskipulagi að nýju Hallahverfi í Úlfarsárdal gerir ráð fyrir að þar rísi allt að 3.700 íbúðir á 80 hektara svæði. Tillagan var kynnt á opnum kynningarfundi borgarstjóra um húsnæðismál í dag.Arkitektastofan Nordic Office of Architecture í samstarfi við Eflu og dönsku landslagsarkitektastofuna SLA báru sigur úr bítum í hugmyndaleitinni, að því er fram kemur í tilkynningu. Samkvæmt tillögunni verður hverfismiðja með fjölbreyttri starfsemi, þjónustu og stofnunum.Samkvæmt tillögu að breytingum á aðalskipulagi vegna uppbyggingar Halla og nágrennis, sem birt var í skipulagsgátt í nóvember í fyrra, verður byggð í hverfinu ekki eins þétt og í Keldnalandi og á Ártúnshöfða, heldur á þéttni að taka mið af byggð á aðliggjandi svæðum. Miðað er við fimm hæða hús eða lægri. UTAN Á