Orkutengdir skattar verða lækkaðir verulega á Spáni til að stemma stigu við áhrifum stríðsins í Miðausturlöndum. Þetta er hluti af fimm milljarða evra (720 milljarða króna) aðgerðarpakka sem ríkisstjórn landsins samþykkti á neyðarfundi í dag.„Sérstakar aðstæður kalla á sérstök viðbrögð,“ sagði Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar þegar hann kynnti aðgerðirnar, sem hann segir nauðsynlegar til að vernda heimili og mikilvæga innviði fyrir áhrifum hækkandi olíuverðs og orkukostnaðar.Aðgerðirnar eru alls í 80 liðum. Meðal þeirra er að lækka skatta á eldsneyti það mikið að það kosti um 20 evrum (um 3.000 krónum) minna að fylla á tank á venjulegum fólksbíl. Ríkið mun að auki niðurgreiða hvern bensínlítra um 20 evrusent (tæpar 30 krónur) til samgöngufyrirtækja, bænda, búgarða og sjómanna, auk þes