Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi í Korngörðum í Reykjavík í morgun þegar sprenging varð í atvinnuhúsnæði Fóðurblöndunnar. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild, annar alvarlega slasaður.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Tilkynning um málið barst lögreglu rétt fyrir klukkan hálf átta og héldu viðbragðsaðilar strax á staðinn. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang voru þar nokkrir aðrir starfsmenn. Hlúð var að þeim í húsnæði nærliggjandi fyrirtækis og reyndust þeir ómeiddir.