„Ég var þarna í tvö og hálft ár. Upplifun mín var eins og ég væri í fangelsi. Við máttum eiginlega ekki gera neitt,“ segir kona á þrítugsaldri sem dvaldi á fósturheimili í Garðinum á Reykjanesi á árunum 2017 til 2019. Hún flutti af heimilinu einum degi áður en það hætti að vista fósturbörn árið 2019. Þetta heimili hét Gauksstaðir.Heimilið var starfandi í áratug og voru í heildina um 30 börn sem bjuggu þar á þessu tímabili. Þetta heimili var rekið af hjónum. Árið 2019 hættu barnaverndaryfirvöld að vista börn á heimilinu. Ekki fást skýr svör við því af hverju Barna- og fjölskyldustofa hætti að vista börn á heimilinu. Stofnunin segist ekki getað svarað spurningum um einstök mál.Í svari Heru Óskar Einarsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs hjá Reykjanesbæ, segir um ástæðu þess að fósturbörn voru