Þegar dularfull spákona úr austri birtist í friðsælum dal í íslenskri sveit fara ævintýralegir hlutir að gerast og allt sem áður var fer úr skorðum. Barátta kotbænda við auðvaldið í nærliggjandi kaupstað, hrifnæmi fjósastráks og forboðnar ástir heimasætu. Um þetta fjallar fyrsta skáldsaga Estherar Hilmarsdóttur, Sjáandi. Hún hefur áður gefið út ljóðabókina Fegurðin í flæðinu sem tilnefnd var til Fjöruverðlaunanna.Esther er bóndadóttir úr Aðaldal en Þorgeir Tryggvason, gagnrýnandi Kiljunnar á RÚV, segir söguna eiginlega hljóta að gerast í Laxárdal. Þetta sé vegna þess að Molastaðir, þar sem flestar persónurnar búa, virðast eiga á hættu að fara undir vatn þegar stífluáform „vondu Akureyringanna verða að raunveruleika.“„Það er einn meginþráður bókarinnar. Þetta er augljóslega sótt í þá sannsö