Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Chuck Norris látinn

Chuck Norris, hasarmyndahetja og bardagaíþróttamaður, lést í dag. Hann fagnaði 86 ára afmæli sínu í síðustu viku.Norris kom fyrst fram á sjónarsviðið sem leikari árið 1972, þegar hann lék á móti Bruce Lee í í myndinni The Way of the Dragon. Eftir það átti hann farsælan þrjátíu ára feril í kvikmyndum og sjónvarpi þar sem hann oftar en ekkki sýndi hæfileika sýna í bardagaíþróttum. Frægastur var hann fyrir að leika aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Walker, Texas Ranger sem voru sýndir á CBS-sjónvarpsstöðinni á árunum 1993-2001.Norris setti færslu inn á Instagram í síðustu viku, á 86 ára afmælisdegi sínum. Þar var sett inn myndskeið af honum kýla boxpúða af miklum móð. Hann skrifaði síðan: „Ég eldist ekki. Ég fer á næsta stig. Það jafnast ekkert á við að leika sér smá á sólríkum degi til að f
Chuck Norris látinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta