Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Úkraína í lausu lofti eftir stormasaman leiðtogafund Evrópusambandsins

Leiðtogar Evrópusambandsins og aðildarríkjanna voru óvægnir í orðum sínum eftir fund þeirra hér í Brussel í gær, þar sem Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands neitaði alfarið að láta af andstöðu sinni gagnvart níutíu milljarða evra láni ESB til Úkraínu.„Leiðtogaráðið lætur ekki kúga sig,“ sagði Antonio Costa forseti ráðsins – sem almennt er þekktur fyrir vinsamlega framkomu og kurteislegt orðafar. „Það á að standa við gerða samninga,“ sagði hann á blaðamannafundi í nótt, þegar fundi leiðtoganna var lokið, og vísaði með því til samkomulags sem gert var á leiðtogafundi ESB í desember – og Orban var hluti af – um að þrjú ríki, þar á meðal Ungverjaland, tækju ekki þátt í kostnaðinum við að veita Úkraínu þetta lán.„Einn af leiðtogum ráðsins stendur ekki við orð sín,“ sagði Ursula von der
Úkraína í lausu lofti eftir stormasaman leiðtogafund Evrópusambandsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta