BEABADOOBEE FT THE MARÍAS – ALL I DID WAS DREAM OF YOU Ensk-filippseyska tónlistarkonan og krúttið Beabadoobee sendi frá sér laumuna All I Did Was Dream of You á síðustu helgi. Lagið hittir heldur betur í mark hjá indie-krökkum. Í því fær hún sér til aðstoðar draumapoppsveitina The Marías frá Los Angeles. ARLO PARKS – GET GO Það er farið að styttast í nýju plötuna frá Arlo Parks, Ambiguous Desire og hún heldur áfram að senda frá sér lög til að kynda mannskapinn. Það nýjasta, sem heitir Get Go, fer vel af stað með nostalgísku nýju klúbbasándi sem er góð andstæða við angurværan og dapran tón Arlo Parks. YĪN YĪN – IN SEARCH OF YANG Hollenska sveitin Yin Yin hefur líklega raðað í sig aðeins of mörgum skrítnum smákökum í gegnum tíðina og er að velta því fyrir sér þessa dagana. Í nýja lag