Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mette-Marit segir Epstein hafa ráðskast með sig og blekkt

Norska krónprinsessan Mette-Marit segist í nýju viðtali við NRK hafa látið stjórnast af kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein sem hafi blekkt hana og jafnvel hrætt. „Auðvitað óskaði ég þess að ég hefði aldrei hitt hann,“ segir krónprinsessan.Hún kveðst taka ábyrgð á því að hafa ekki kannað bakgrunn Epsteins betur og líka fyrir að leyfa honum að svíkja sig og pretta. Hins vegar sé mikilvægt að skýra að hún beri ekki ábyrgð á athæfi Epsteins og ítrekar hversu leitt henni finnst að fórnarlömb hans hafi ekki enn fengið réttlætinu fullnægt.Mikið hefur mætt á Mette-Marit undanfarið, sonur hennar er fyrir rétti ákærður fyrir kynferðisbrot og heilsa hennar sjálfrar hefur verið bágborin.Í viðtalinu segir hún að álagið hafi aukist mikið eftir að á daginn kom að hún átti í töluverðum og nánum samski
Mette-Marit segir Epstein hafa ráðskast með sig og blekkt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta