Eigandi Mengis setti fasteignina sem hefur hýst tónleikastaðinn frá 2013 á sölu. Hann er þó ekki alveg ákveðinn í að selja heldur setti hann eignina á sölu til að hreyfa við fólki og telur það hafa tekist með nýjum samningi við Reykjavíkurborg. Mengi sé langtímalistaverk og framtíð þess óráðin.