Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Nýr samningur sagður marka nýja gullöld í samskiptum Bandaríkjanna og Japans

Leiðtogar Bandaríkjanna og Japans tilkynntu í gær umfangsmikla japanska fjárfestingu í orkuinnviðum og iðnaði Bandaríkjanna. Bandaríkin og Japan hafa komist að samkomulagi um byggingu kjarnaofna í Tennessee og Alabama að verðmæti um 40 milljarða dala auk jarðgasorkustöðva í Pennsylvaníu og Texas.Þetta var tilkynnt eftir fund Donalds Trump og Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, í gær. Stöðvarnar komi jafnvægi á orkuverð til Bandaríkjamanna og styrki forystu ríkjanna beggja á tæknisviðinu.Samkvæmt ákvæðum viðskiptasamnings ríkjanna frá í fyrra munu Japanir leggja 550 milljarða dala til margvíslegrar fjárfestingar í Bandaríkjunum til ársins 2029. Á móti voru boðaðir tollar á innflutningsvörur þaðan lækkaðir. Fyrstu innviðaverkefnin voru kynnt í febrúar, þar sem Japan leggur fram um 36 mi
Nýr samningur sagður marka nýja gullöld í samskiptum Bandaríkjanna og Japans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta