Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

NASA vonast til að leggja í ferð umhverfis tunglið snemma í apríl

Bandaríska geimferðastofnunin NASA vonast til að geta sent mannað geimfar umhverfis tunglið snemma í apríl. Tæknileg vandkvæði með skotflaugina hafa tafið ferðalagið talsvert. Viðgerð er lokið og tæknimenn NASA hófu í gær að flytja risastóra flaugina og Orion-geimfarið sjálft ofurhægt að skotpallinum á Kennedy-geimferðamiðstöðinni í Flórída.Þá hefst lokaundirbúningur og prófanir á flauginni fyrir ferðina sem gæti hafist svo snemma sem 1. apríl. Reynist öll kerfi flaugarinnar virka sem skyldi leggur áhöfn Artemis 2, þrír Bandaríkjamenn og Kanadamaður, upp í um það bil tíu daga ferð umhverfis tunglið og lengra út í geim en nokkur mannvera hefur ferðast hingað til.Til stóð að leggja í hann snemma í mars en alvarleg bilun í áfyllingarbúnaði fyrir fljótandi helíum kom í veg fyrir það. Því var f
NASA vonast til að leggja í ferð umhverfis tunglið snemma í apríl

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta