Ísraelsher hóf stórfelldar loftárásir á Teheran, höfuðborg Írans í morgun. Stjórnvöld í Kúveit, Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum segja loftvarnarkerfi hafa stöðvað eldflauga- og drónaárásir frá Íran.Ísraelskir hermenn rannsaka leifar íranskrar eldflaugar sem féll nærri Gólan-hæðum.EPA / ATEF SAFADIBrak úr íranskri eldflaug kveikti eld í vöruhúsi í Barein, samkvæmt upplýsingum innanríkisráðuneytisins. Loftvarnarflautur ómuðu víða um löndin öll.Olíuhreinsistöðvar í Sádi Arabíu og Kúveit skemmdust í drónaárásum á fimmtudag og á miðvikudag varð mikið tjón í árás Írana á stærstu gasdreifingarstöð heims, í Katar. Írönsk yfirvöld sögðu þá atlögu í hefndarskyni fyrir loftárásir Ísraelshers á jarðgasvinnslustöð sína við Persaflóa.