Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump-stjórnin semur um vopnasölu til ríkja í Mið-Austurlöndum

Bandaríkin hafa samþykkt umfangsmikla vopnasölu til Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Wall Street Journal segir samninginn ná til sölu á Patriot-eldflaugakerfum og flutningaþyrlum.Patriot-eldflaugakerfi líkt og Bandaríkin selja Sameinuðu arabísku furstadæmunum.EPA / Robert GhementBandaríkin greindu frá milljarða dala vopnasölu til annarra ríkja í Mið-Austurlöndum í gær en tilkynntu viðskiptin við furstadæmin ekki sérstaklega þar sem þau eru framhald á fyrra samkomulagi.Stjórnvöld í furstadæmunum segjast hafa komið upp um starfsemi glæpasamtaka sem Íranir og Hezbollah í Líbanon fjármagna og stjórna. Samkvæmt fréttum ríkisfjölmiðilsins ógnuðu samtökin öryggi meðal annars með ástundun peningaþvættis og stuðningi við hryðjuverkastarfsemi.
Trump-stjórnin semur um vopnasölu til ríkja í Mið-Austurlöndum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta