Rýmingu og óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið aflétt á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi eftir að kólnaði og frysti eftir hlýindi. Mörg snjóflóð féllu á Vestfjörðum og Norðurlandi.Ólöf Rún ErlendsdóttirEnn er óvissustig í gildi vegna hættu á krapaflóðum á sunnanverðum Vestfjörðum samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands. Nokkur lítil krapaflóð féllu þar í dag og dregið hefur úr hættunni eftir að kólnaði en áfram er eitthvað vatn í farvegum. Mörg snjóflóð féllu á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi í hlýindunum.