Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í gær um 0,25 prósentustig og eru þeir því orðnir 7,5 prósent. Verðbólga mælist 5,2 prósent, sem þýðir að forsendur kjarasamninga í haust eru í hættu.Halla Gunnarsdóttir, formaður VR segir kjarahækkanir eina tólið sem verkalýðshreyfingin hafi. Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins segir nauðsynlegt að hlusta á varnarorð sem höfð eru uppi. HÆTTA Á MEIRA ATVINNULEYSI „Við höfum gjarnan farið í að leita að einhverjum sökudólgum í þessari umræðu, ég held að við mættum bara spara okkur þá umræðu akkúrat núna,“ segir Þorsteinn.„Það var reynt að fara í hófstilltari kjarasamninga hér síðast heldur en áður. Það greinilega tókst ekki nægilega vel hjá okkur.“Mestu máli skipti hvernig brugðist verði við stöðunni. „Ef við sitjum föst áfram í verðbólgu sem