Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, heldur því fram að Íranir geti ekki lengur auðgað úran, sem þarf til þess að búa til kjarnorkuvopn, eða framleitt frekari skotflaugar. Hann neitar því að Ísraelsmenn hafi dregið Bandaríkjamenn í stríðið og segir Ísraelsmenn ætla að hætta að ráðast á olíuinnviði Írans.