Rússneski stríðsbloggarinn Ilya Remeslo var lagður inn á geðdeild á spítala í Pétursborg í gærkvöld. Rússneski miðillinn Bumaga greinir frá þessu á Telegram.Remeslo var áður stuðningsmaður Pútíns og studdi allsherjarinnrás Rússlandshers í Úkraínu en á þriðjudagskvöld birti hann færslu á Telegram þar sem hann gagnrýndi forsetann harðlega.Færslan ber yfirskriftina Fimm ástæður þess að ég hætti að styðja Vladimír Pútín. Í henni sakar Remeslo Pútín um að hafa eyðilagt efnahag Rússlands, rýrt lífskjör almennings, hert tökin á fjölmiðlum og netinu, leyft spillingu að grassera og að senda hermenn út í opinn dauðann á víglínunni í Úkraínu.Í ljósi þessa hefur innlögn Remeslo á geðdeild vakið grunnsemdir. TAUGAÁFALL EÐA MANNRÁN? Skyndileg stefnubreyting Remeslo hefur hingað til ekki hlotið meðbyr