Dósent við viðskipta og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík segir að það verði snúið að semja ef forsendur kjarasamninga bresta. Ekki sé víst að best sé að semja um launahækkanir heldur frekar aðra þætti. Traust á vinnumarkaði hafi lengi verið lítið og það standi okkur fyrir þrifum.Verðbólga og verðbólguvæntingar eru á uppleið og Seðlabankinn hefur hækkað vexti í fyrsta sinn síðan árið 2023. Flestir eru á því að forsendur langtímakjarasamninga séu að bresta og að aðilar vinnumarkaðarins þurfi að setjast niður saman annaðhvort til að semja um framhaldið eða hreinlega að gera nýja samninga.„Það verður vægast sagt snúið vegna þess að þetta ákvæði miðast við verðbólgu,“ segir Katrín Ólafsdóttir, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík. FREKARI LAUNAHÆKKANIR BÆTI Á VERÐBÓ