Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Nauðsynlegt að tryggja mönnun samhliða fjölgun hjúkrunarrýma

„Það þarf alveg klárlega að fara í aðgerðir til þess að við höfum nægilega mikið af starfsfólki og fagfólki til að manna þessa þjónustu,“ segir Sigurjón Norberg Kjærnested, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hann fagnar áformum stjórnvalda að fjölga hjúkrunarrýmum en bendir á að jafnframt þurfi að mennta fleiri hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða auk þess að efla umönnunarstarfsfólk.Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti fyrr í vikunni áætlanir um að byggja rúmlega 1500 ný hjúkrunarrými fyrir árið 2030. Með því eigi að útrýma biðlistum. Hún hefur einnig sagst vilja stuðla að aukinni mönnun með hækkun launa.Sigurjón segir áform stjórnvalda metnaðarfull og að vinni allir saman sem að málinu koma sé mögulegt að ná þeim. Samhliða fjölgun rýma sé þá forgangsverkefni
Nauðsynlegt að tryggja mönnun samhliða fjölgun hjúkrunarrýma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta