Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Landsmenn sjá gull í almyrkvanum sem líkja má við loðnu

Íslendingar sjá margir gull í almyrkvanum í sumar og freista þess að leigja út hús sín og íbúðir á uppsprengdu verði. Seðlabankastjóri fagnar uppgripum fyrir hönd ferðaþjónustunnar og líkir þessu við loðnu. Ákveðnar viðvörunarbjöllur hljóma í eyrum annarra sem spyrja; er Ísland nægilega undirbúið? FJÖRUTÍU SKEMMTIFERÐARSKIP SEM VERÐA Á ALMYRKVASLÓÐINNI Von er þúsundum erlendra ferðamanna hingað til lands um miðjan ágúst til að berja almyrkvann augum. Nánar tiltekið 12. ágúst.Fram kom í fréttum nýverið að fjögur lögregluembætti ynnu saman að viðbragðinu auk ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytisins, og að störfum er samráðshópur á vegum almannavarna sem metur hversu margt fólk verður á ferðinni. Það gefur kannski ágætis mynd af stöðunni að nærri fjörutíu skemmtiferðaskip hafa tilkynnt
Landsmenn sjá gull í almyrkvanum sem líkja má við loðnu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta