Trump býst við að Japan bæti í stuðning sinn við Bandaríkin gegn Íran. Þetta sagði hann á fundi með Sanae Takaichi forsætisráðherra Japans í dag. Trump benti á að Bandaríkin væru með 45.000 hermenn í Japan.Trump dró þó í land líka og sagðist í raun ekki þurfa neitt, hvorki frá Japönum né öðrum. Honum finnist þó við hæfi að bætt verði í stuðning. Mikið væri undir hjá Japönum því 90 prósent af olíu þeirra fari um Hormússund.Trump sagði Bandaríkjamenn tryggja öryggi á sundinu fyrir „alla aðra“ og að lítil hjálp væri í NATO-ríkjum. Íranar lokuðu sundinu eftir að herir Bandaríkjanna og Ísraels hófu árásir fyrir tæpum þremur vikum.Forsætisráðherra Japans ásamt Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í dag.EPA / Aaron Schwartz /POOL