Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjölþjóðlegur listi umsækjenda um stöðu tónlistarstjóra Þjóðaróperu

Tíu sóttu um stöðu tónlistarstjóra nýstofnaðrar Þjóðaróperu. Finnur Bjarnason óperustjóri segir í samtali við RÚV að ekki sé hægt að segja með vissu hvenær tónlistarstjóri verður ráðinn.Finnur var skipaður í embætti óperustjóra til fimm ára í janúar. Hann segir nóg að gera í undirbúningi fyrir opnunarviðburð Þjóðaróperunnar sem verður í Hofi á Akureyri í haust. Um leið og búið er að ráða tónlistarstjóra verði auglýstur prufusöngur til að hægt sé að ráða söngvara. Þá á eftir að ráða fræðslustjóra og í stöðu sem nefnist repetiteur, það er æfingapíanisti og söngþjálfari.Alþingi samþykkti í fyrra frumvarp um stofnun Þjóðaróperu. Hún heyrir undir Þjóðleikhúsið og hefur aðsetur í Hörpu.
Fjölþjóðlegur listi umsækjenda um stöðu tónlistarstjóra Þjóðaróperu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta