Bílastæðum við nýbyggingar í Reykjavík mun fjölga verði tillaga sem liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar samþykkt. Tillagan snýr að því að rýmka viðmið fyrir íbúðahúsnæði um allt að 0,5 bílastæði á íbúð og var til umræðu á fundi ráðsins í gær.