Tími skrímslanna var ónákvæm þýðing úr ítölsku á hugleiðingum Antonios Gramsci sem farið hefur víða síðastliðna mánuði. Ógnvænlegir tímar (e. morbid times) er líklegast betur lýsandi þýðing fyrir skrif hans og heimsástandið eftir hernaðinn sem hófst í Mið-Austurlöndum um síðustu helgi. Verðbólgudraugnum hefur stundum verið lýst sem skrímsli, sérstaklega á skopmyndum horfinnar tíðar. Draug eða skrímsli sem jafnvel éti börnin...