Hinar sívinsælu Labubu-dúkkur munu brátt prýða hvíta tjaldið í nýrri kvikmynd er kemur fram í tilkynningu leikfangafyrirtækisins Pop Mart og kvikmyndaframleiðandans Sony Pictures.Myndin verður bæði leikin og teiknuð og leikstýrð af Paul King sem þekktur er fyrir kvikmyndirnar Wonka, Paddington og sjónvarpsþættina The Mighty Boosh úr ranni BBC.Meðframleiðandi myndarinnar og höfundur verður Steven Levenson sem skrifaði söngleikinn Dear Evan Hansen og söngvamyndina Tick, Tick... Boom! sem vöktu mikla athygli.EPA / JESSICA LEE