Framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma segir nauðsynlegt að bálstofan í Fossvogi fái framlengingu á starfsleyfi svo líkbrennsla leggist ekki af. Verði bálstofunni gert að vinna eftir ýtrustu skilyrðum geti hún ekki annað nema rúmlega 40% af þeim bálförum sem óskað er eftir. NÁ AÐ ANNA ÖLLUM ÓSKUM VEGNA UNDANÞÁGU Bálstofan í Fossvogi hefur starfað í tæplega 80 ár og er sú elsta á Norðurlöndunum. Ofnarnir eru komnir til ára sinna og ekki útbúnir nauðsynlegum mengunarvörnum.Að undanförnu hefur bálstofan starfað á undanþágu sem rennur út um miðjan ágúst.„Svona samkvæmt ítrustu skilyrðum gætum við ekki brennt alla sem til okkar leita og vilja óska eftir bálför vegna þess að okkur er samkvæmt lögum ekki stætt á því að velja á milli þeirra sem kjósa bálför. Þannig að ef frekari ta