Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hart sótt að fjármálaráðherra á Alþingi

Öllum fimm óundirbúnum fyrirspurnum þingmanna til ráðherra í morgun var beint til Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra þótt þrír aðrir ráðherrar væru til svara og þar á meðal utanríkisráðherra. Ástæðan er samt einföld, ákvörðun Seðlabankans frá í gær að hækka stýrivexti, útlitið sé ekki gott og ráðherra var spurður hvort hann hefði ekki áhyggjur af þeirri stöðu sem væri að teiknast upp. VEXTIR OG VERÐBÓLGA Í HÆSTU HÆÐUM Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins sagði útlitið ekki gott og að aðstæður væru ekki frýnilegar. Hún sagði ríkisstjórnina ekkert ætla að hjálpa Seðlabankanum til þess að ná niður verðbólgunni. Í sama streng tók Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins. „Hvernig ætlar hæstvirtur frjármálaráðherra að bregðast við stöðunni sem up
Hart sótt að fjármálaráðherra á Alþingi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta