Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Samþykkt að tengja almannatryggingar við launavísitölu

Alþingi samþykkti upp úr hádegi frumvarp ríkisstjórnarinnar um að láta árlegar breytingar á greiðslum almannatrygginga taka mið af þróun launavísitölu í stað launaþróunar. Frumvarpið var samþykkt með 33 atkvæðum stjórnarflokkanna gegn 21 atkvæði stjórnarandstæðinga. Fjórir þingmenn greiddu ekki atkvæði og fimm voru fjarstaddir.Stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar tókust á um breytinguna í atkvæðagreiðslu, líkt og þeir höfðu gert í umræðum um frumvarpið. Stjórnarandstæðingar lýstu þessu sem stærstu og verstu hagstjórnarmistökum ríkisstjórnarinnar á meðan stjórnarliðar sögðu það félagslegt réttlæti að stöðva kjaragliðnun.Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mælti fyrir frumvarpinu þegar hún var félags- og húsnæðismálaráðherra.
Samþykkt að tengja almannatryggingar við launavísitölu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta