Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Öryggi gagna í sameiginlegu netdrifi lögregluembætta óásættanlegt

Öryggi gagna í sameiginlegu netdrifi lögregluembætta landsins er óásættanlegt að mati nefndar um eftirlit með störfum lögreglu. Þetta er niðurstaða frumkvæðisathugunar á gagnageymsluverklagi lögreglu sem nefndin hóf í kjölfar fréttaflutnings Kveiks á RÚV þann 29. apríl í fyrra, sem fjallaði meðal annars um að viðkvæmum gögnum hafi verið stolið frá lögreglu og sérstökum saksóknara.Nefndin óskaði eftir gögnum frá embætti ríkislögreglustjóra og öllum lögregluembættum landsins.Í niðurstöðu frumkvæðisathugunarinnar segir að nefndin telji að gagnaöryggi og rekjanleiki í bæði málaskrá lögreglu og því kerfi sem vistar stafræn sönnunargögn sé ásættanlegt. Það sama eigi hins vegar ekki við um sameiginlegt netdrif lögregluembætta landsins.Nefndin segir að brýn þörf sé á að bæta öryggi vistunar gagna
Öryggi gagna í sameiginlegu netdrifi lögregluembætta óásættanlegt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta