Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Telur lækkun matarskatts hafa takmörkuð áhrif

Í Þetta helst í dag er sjónum beint sérstaklega að verðhækkunum á mat og hvort æskilegt sé að lækka virðisaukaskatt á matvöru – alla vega tímabundið – eins og nágrannaríki okkar ætla eða íhuga að gera. Alþýðusamband Íslands birti í gær niðurstöður úr nýrri verðlagskönnun – og þar kom fram að verð á matvöru hefði hækkað um tæplega 0,7 prósent á milli mánaða og að hækkunin væri þvert á vöruflokka. Mestu munar um unnar kjöt- og mjólkurvörur en sælgæti og aðrar dýraafurðir hækka einnig. Þá var á það bent að matvöruverð hefði hækkað meira á fyrstu þremur mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra.Forseti ASÍ telur að lækkun virðisaukaskatts á matvöru myndi hafa takmörkuð áhrif til lengri tíma vegna lítillar samkeppni á matvörumarkaði. Í Svíþjóð verður skatturinn lækkaður tímabundið úr 12 prósentum í
Telur lækkun matarskatts hafa takmörkuð áhrif

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta