Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stríðsbloggari snýst gegn Pútín

Færsla sem rússneski stríðsbloggarinn Ilya Remeslo birti á Telegram á þriðjudagskvöld hefur vakið athygli í Rússlandi og víðar því þar gagnrýnir hann Pútín harðlega. Remeslo hefur verið mikill stuðningsmaður Pútíns og stutt allsherjarinnrás Rússlandshers í Úkraínu en nú kveður við annan tón.Færslan ber yfirskriftina Fimm ástæður þess að ég hætti að styðja Vladimír Pútín. Remeslo sakar Pútín um að senda hermenn út í opinn dauðann á víglínunni í Úkraínu.Hann sakar Pútín einnig um að hafa eyðilagt efnahag Rússlands, rýrt lífskjör almennings, hert tökin á fjölmiðlum og netinu og leyft spillingu að grassera. „Vladimír Pútín er ekki réttkjörinn forseti. Vladimír Pútín þarf að segja af sér og fara fyrir dóm sem stríðsglæpamaður og þjófur,“ segir í yfirlýsingunni á Telegram. STUDDI OFSÓKNIR GEGN
Stríðsbloggari snýst gegn Pútín

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta