Lögmaður segir eftirliti með velferð dýra í verksmiðjubúskap hér á landi ábótavant. Myndefni sem birtist í Kveik á þriðjudag, sem sýni aðstöðu dýra í minkabúi, sé sláandi – en komi þó ekki á óvart. EFTIRLITI ÁBÓTAVANT „Við erum að sjá birtingarmynd á mjög stóru vandamáli á Íslandi sem er það að hér á landi eiga sér stað kerfisbundin brot gegn lögum sem eiga að tryggja vernd og velferð dýra á hverjum einasta degi. Dýraníð líðst almennt á Íslandi,“ segir Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur sem hefur sérhæft sig í dýraverndarmálum.Hún segir að eftirlitsstofnanir hafi ekki burði til að taka á slíkum brotum, þrátt fyrir skýrar heimildir í lögum. Brot gegn lögum um dýravernd séu sjaldan kærð til lögreglu eða starfseminni lokað. Þá sé fátítt að beitt sé dagsektum, þrátt fyrir að það sé eitt af þei