Skiptum á þrotabúi Kvikmyndaskóla Íslands lauk í síðustu viku. Alls var lýst kröfum upp á 217 milljónir króna í búið og fengust tæpar tíu milljónir upp í þær. Eignir dugðu því fyrir 4,5 prósentum af kröfum.Búskröfur upp á 3,4 milljónir voru greiddar að fullu og 6,4 milljónir fengust upp í forgangskröfur. Milljónirnar sex dugðu til að greiða 14 prósent af samþykktum forgangskröfum. Ekkert fékkst upp í almennar kröfur og eftirstæðar kröfur.Kvikmyndaskólinn varð gjaldþrota í mars í fyrra. Rafmennt, í eigu Rafiðnaðarsambands Íslands, og Samtök rafverktaka keyptu eignirnar af þrotabúinu og héldu starfseminni áfram á nýjum stað.Húsnæði Kvikmyndaskóla Íslands fram að gjaldþroti.RÚV / Ragnar Visage