Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands sló tóninn þegar hann kom á leiðtogafundinn hér í Brussel í morgun. „Við samþykkjum enga ákvörðun sem hjálpar Úkraínu, á meðan ekki er búið að leysa þetta með olíuna,“ sagði Orban við fjölmiðla í morgun. „Við erum ekki að tala um pólitík, heldur grundvallaratriði fyrir Ungverjaland: án olíunnar verða heimili og fyrirtæki þar gjaldþrota.“Þessi deila hefur staðið undanfarnar vikur í kjölfar þess að Druzhba olíuleiðslan, sem liggur um Úkraínu skemmdist - í árás Rússa segja stjórnvöld í Kyiv. Ungverjar saka Úkraínumenn hins vegar um að hafa skemmt þessa leiðslu viljandi.Ungverjar fá stóran hluta af sinni olíu í gegnum þessa leiðslu frá Rússlandi - á undanþágu frá banni sem Evrópusambandið hefur sett á innflutning á rússneskri olíu. Orban samþykkti r