„Það er eins og að mæta á skriðdreka í hnífabardaga,“ segir framkvæmdastjóri Atlantsflugs um þá tillögu að Super Puma-þyrla frá Landhelgisgæslunni sinni sjúkraflugi út frá Akureyri. Reka megi fjórar minni þyrlur fyrir sama fé og dreifa þeim um landið.