Hamingjuskýrslan, World Happiness Report sem birtist nú í 14. skipti, sýnir að Íslendingar eru næsthamingjusamastir þjóða veraldar. Finnar tróna á toppnum níunda árið í röð og Danir eru í þriðja sæti.„Ef hamingja væri íþróttamót ættu Norðurlandaþjóðirnar verðlaunapallinn.“ Kosta Ríka kemur sterkt inn í fjórða sæti og aldrei hefur ríki Rómönsku Ameríku skorað jafn hátt á hamingjulista veraldarinnar.Þá koma frændur okkar Svíar og Norðmenn, sem fimmta og sjötta hamingjusamasta þjóð veraldar. Ísrael, sem er í áttunda sæti, er eina ríki Mið-Austurlanda sem nær inn á topp tuttugu listann.Það er engin tilviljun að íbúar Norðurlanda séu jafn ánægðir með lífið og raun ber vitni, að sögn Johns F. Helliwell, fyrrverandi hagfræðiprófessors og eins stofnenda skýrslunnar. Þar séu meðal annars öflug heil