Japanski forsætisráðherrann Sanae Takaichi hittir Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington í dag á viðkvæmum tímapunkti. Trump gagnrýndi japönsk stjórnvöld í færslu á Truth Social fyrr vikunni fyrir að bregðast ekki við ákalli um liðsinni við að halda Hormússundi opnu.Trump lét einnig ríki Atlantshafsbandalagsins heyra það, Ástrali og Suður-Kóreumenn. „Við þörfnumst hvorki lengur né viljum aðstoð frá ríkjum NATO. VIÐ ÞURFTUM HANA ALDREI! Ekki frekar en hjálp frá Japan, Ástralíu og Suður-Kóreu,“ skrifaði Trump.Því segja greinendur að Takaichi þurfi að sýna mikla jafnvægislist svo hún ergi hvorki Trump meira né fari á svig við ákvæði japönsku stjórnarskrárinnar frá 1947 sem byggir mjög á friðarhugsjón.Forsætisráðherrann kvaðst í þingræðu á miðvikudag ætla að gera Trump ljóst að Japanir ge