Íranski byltingarvörðurinn hótar nágrannaríkjunum við Persaflóa gereyðingu allra olíu- og gasinnviða hætti Ísraelar og Bandaríkjamenn ekki að gera árásir á orkuinnviði Írans. Í yfirlýsingu byltingarvarðarins segir að næstu árásir verði mun þyngri en sú sem gerð var á stærstu gasdreifingarstöð heims í Ras Laffan í Katar. Byltingarvörðurinn segist hafa gert tvær eldflaugaárásir á stöðina og þar logi miklir eldar.Forsetinn Masoud Pezeshkian varaði við geysihörðum afleiðingum af atlögum að orkuinnviðum eftir að stór gasframleiðslustöð í Íran skemmdist í árás. Sameinuðu arabísku furstadæmin og Katar fordæmdu þá árás, hvort í sínu lagi. Allri gasvinnslu í Habsan-stöðinni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hefur verið slegið á frest eftir eldflaugaárás í nótt. Yfirvöld segja eldflaugina hafa veri