Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stækkunarstjóri Evrópusambandsins vill flýta fyrir umræðum um helstu forgangsmál Íslands

Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, kveðst reiðubúin að flýta fyrir samningaviðræðum um helstu forgangsmál Íslands, ákveði Íslendingar í þjóðaratkvæðagreiðslu að hefja aðildarviðræður að nýju. Færsla Kos á X hefst á orðunum „Þann 29. ágúst greiða Íslendingar atkvæði um hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum við ESB“. Kos, sem er margreyndur slóvenskur diplómati, kvaðst í færslunni einnig hafa rætt sérstök málefni Íslands við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á fundi þeirra í Brussel í gær. Þar undirrituðu þær Þorgerður og Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, samstarfsyfirlýsingu um öryggis- og varnarmál. Ísland er níunda ríkið sem undirritar yfirlýsingu um samstarf í þeim efnum við Evrópusambandið. Hún felur hvorki í sér skuldbindingar fyrir landið n
Stækkunarstjóri Evrópusambandsins vill flýta fyrir umræðum um helstu forgangsmál Íslands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta