Árás Ísraelshers á íranska gasvinnslu við Persaflóa er hættuleg stigmögnun átaka, segir utanríkisráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna.Árásin var gerð með samþykki og í samráði við bandarísk stjórnvöld. Þetta hefur Axios eftir tveimur heimildarmönnum úr ísraelsku stjórnsýslunni.Pars er á meðal stærstu gasvinnslusvæða heims. Það er á grunnsævi í Persaflóa, á milli Írans og Katar, og þaðan sækja bæði ríki gas úr jörðu. Árásin var gerð á þeim hluta Pars sem er undir írönskum yfirráðum. HÓTA ÁRÁSUM Á VINNSLUSTÖÐVAR Í EIGU BANDARÍKJAMANNA Þetta er í fyrsta sinn sem Ísraelar gera árás á gasvinnslur Írana en þær eru undirstaðan fyrir efnahag landsins. Enginn særðist í árásinni. Íransher hefur varað við að hann ætli að bregðast harkalega við árásum á orkuinnviði landsins. Allar olíu- og ga