Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) skoðar hvort fyrirkomulag sölu á áfengi samræmist samningnum um Evrópska efnahagssvæðið eftir að stofnuninni barst kvörtun þess efnis. ESA hefur krafið íslenska ríkið svara vegna tiltekinna þátta fyrirkomulagsins.Þetta kemur fram í bréfi sem ESA hefur sent fjármálaráðuneytinu. Þar segir að í nóvember hafi ESA borist kvörtun gegn íslenska ríkinu vegna einokunarstöðu ÁTVR á smásölumarkaði. Í kvörtuninni er rakið að forsendur fyrir einokun ÁTVR séu brostnar og þar af leiðandi brjóti þær í bága við EES-samninginn.Í fyrsta lagi hafi íslenska ríkið þegar leyft sölu áfengra drykkja á framleiðslustað, með ákveðnum takmörkunum. Í öðru lagi hafi sölu áfengis í fríhafnarverslunum verið útvistað til einkaaðila eftir útboð og í þriðja lagi hafi aðgengi að áfengum drykkjum au